Krummi svaf í Imprezu...
Ég er fullkomlega meðvitaður um þá staðreynd að þetta lag er eflaust það fyrsta sem allir gera þegar þeir komast fyrst í tónlistarforrit og því ættu að vera ótal margar útgáfur af því þarna úti, en ---->HÉRNA<---- er mín útgáfa.

Það er dálítið lengi að byrja, en ég fékk það ekki af mér að stytta það meira en þetta.
Flestir sem hafa kíkt í heimsókn hafa sennilega heyrt lagið óklárað, en loksins hvarf stíflan og ég kláraði það áðan.
-Góða skemmtun! Happy

(P.S. Titilinn fann Dóri hennar Silju vinkonu)
|